Skip to main content

.

 

Ljóðin - Eysteinn Björnsson

Eysteinn BjornssonEysteinn Björnsson er fæddur á Stöðvarfirði 1942 og hefur dvalið þar á sumrum síðastliðin 40 ár, ásamt konu sinni, Önnu Njálsdóttur, börnum þeirra og barnabörnum. Telja þau hjónin óspillta náttúruna í firðinum góða til mestu lífsgæða. Eysteinn hefur gefið út þrjár ljóðabækur, Dagnætur (1993), Fylgdu mér slóð (1998) og Logandi kveikur (2005). Einnig hafa komið út eftir hann þrjár skáldsögur, Bergnuminn (1989), Snæljós (1996) og Í skugga heimsins (1999). Í faðmi fjallanna á Stöðvarfirði hafa fæðst þrjár barna- og unglingabækur, Út í blámann (2002), Stelpan sem talar við snigla (2006) og Hrafnaspark (2010). Auk þess allmargar smásögur í blöðum og tímaritum. Ein þeirra, Hvalurinn (The Whale), fékk önnur verðlaun í alþjóðlegri bókmenntasamkeppni (1996).

Stund

Á meðan haustið bíður
eins og svalur skuggi
handan daganna
synda tvær straumendur
inn í lygnuna við bakkann
og stinga saman nefjum

List

Í framandleikanum
er galdurinn fólginn

en vel að merkja
þeim kunnuglega

og þögninni á eftir

Ósk

Hvísli mér orði
í þögn næturinnar
orði sem ég man
þegar morgnar

og fylgir mér
á vegi tímans

Í hlíðinni

Gefðu mér gleymsku
mildustu gjöf þinna gjafa
lof mér að sofna í sumar
þegar brönugrasið
breiðir úr sér í brekkunum
svo ég hafi ilminn
í óminnisnesti

Ákall

Fjötraður skilningi
friðarvana lengst af
hinn viti borni maður

þær tíðir munu upp renna
að hann stendur við ysta haf
og hrópar

góði guð
gerðu mig brjálaðan aftur

Messa

Í dag hlýði ég
á fagnaðarerindið

krýp í mosann
stari inn í krónu
holtasóleyjar

legg eyrun við
gult og hvítt

Kveðjustund

Þegar ég kyssti
kalt ennið
kom minningin
eins og leiftur

bátskel í hafi

endalaus víðáttan
og við tveir
á þessari fjöl

í leit að fjársjóði